Jæja nú kemur nýtt blogg. Tími til?
Vá hvað dagarnir bara þjóta áfram þessa dagana. Allt viriðist taka
svo lítin tíma en samt er maður búinn og byrjaður á nýrri viku áður
en maður veit af. Svona er þetta skrítið. Alltaf nóg að gera. Hvað
myndi maður gera ef maður hefði ekkert að gera? myndi maður þá gera
eitthvað? pæling.
Búinn að vera í mjög vondu skapi í allan dag. fór seint að sofa í
gærkveldi. Ástæðan af því er kannski sú að ég og Bjarki skelltum
okkur á "Date Movie" uppí smára. Nokkuð góð mynd fær svona 7 þumla
af 10. Svo sótti Dabbi okkur.
og skuttlaði okkur heim. síðan
samdi ég verse í gær sem verður nýja lagið okkar. klárað vonandi á
næstunni og tekið upp í páskafríinu. Ég kem með að pósta textanum
hérna seinnast í blogginu. Svo þurfti maður náttúrulega að læra
heima.
Dagurinn í dag = Skóli-Sofnaði heima-Bjarki kom-Æfing-Borðaði
kvöldmat-Æfing-Skrifaði þetta blogg-Læri heima-Sofna.
Nokkuð merkilegur dagur. Ég mæli með því að allir sem að eru ekki
búnir að hafa samband við vin eða félaga (eða bara ættarmeðlim) sem
þeir hafi ekki heyrt í lengi prófi að hringja og athuga statusinn.
Er ekki alltaf gaman að fá símtöl frá einhverjum skemmtilegum?
Æji kannski er maður bara kominn útí væmnu hliðina og ætti að hætta
núna? veit ekki. Veit ekki einu sinni hvort einhver les þetta. En
er það ekki spennan við að lifa? að lifa í óvissunni? Vita aldrei
hvað bíður manns við næsta horn. Vita alldrei hvaða dyr gætu opnast
næst?
Fékk SmS áðan "Var að kaupa mér ís í Brynju og hann var svoldið
Kaldur"..... Hverjum hefði nú dottið það í hug? Veit ekkert
afhverju ég er að segja ykkur þetta. Kannski bara til að spjalla?
En Spjallar einhver á móti? Hver veit?
Vá hvað ég er eitthvað heimspekilegur þessa stundina... á þetta til
að detta inná þetta svið. En er ekki bara gaman af þessu. Ég veit
það s.s. ekki.
Nýja lagið heitir allavena "Hvernig Týpur?" og er svona spurning
til stelpnanna. Þetta er bara mitt verse og á Bjarki eftir að gera
sitt. En við getum vonandi tekið þetta upp í páskafríinu. Hér kemur
textinn.
Hvernig stráka vilja stelpur, á hannað vera massaður/
meða risa stóran bæsep og alltaf með kassan-up/
ljóst hár í lokkum, með englahljómi ljúfum/
nettur í rúmminu með fokking fima túngu/
góður í skóla og með fullu viti/
Eiga slattaf fötum og kúkabrúnn á litinn/
kannski rokkaratýpan, síðhærður lubbi/
ávalt á brúnninni við að detta í ruglið/
í svaka flottu bandi, kannski allgjer rítard/
búnað spila í nokkur ár og klikkaður á gítar/
fullur um helgar, en alltaf semjandi-þó/
hengur með einhverjum gaurum berjandi-fólk/
eða er það saklausi gæjinn sem á bjartari framtíð/
og hann er allveg svalur þó hann fari sjaldar í partý/
lærir alltaf heima, á nokkra góða vini/
alldrei drukkið neitt eða dópað frá sér vitið/
elskar þig svo mikið, en er ekki með bílpróf/
á engan svaka penning en hann bíður þér í bíó/
með svaka pælingar og hugmyndir um lífið-sitt/
Svo segjiði mér stelpur....hvernig týpur fíliði/
A.T.H 15 dagar í afmælið
mitt 